8.5.2008 | 12:15
Fróðleiksmoli um styrki til hjálparstarfa.
Mér finnst pokasjóður vera að standa sig vel.
Mig langar samt til að benda á nokkur atriði varðandi fjárstyrki til hjálparstarfa.
Það hefur sýnt sig að einungis 10% af öllum fjárstyrkjum til hjálparstarfa skili sér í raun og veru á leiðarenda. Restin fer m.a. í rekstur hjálparstofnana, mútur til herskárra hópa o.s.fv. Margir hafa gagnrýnt íslensk stjórnvöld fyrir að leggja ekki meira fjármagn í hjálparstörf, en staðreyndin er sú að þau lönd sem leggja mest til, fá fjármagnið aftur til baka, því það er notað til að kaupa t.d. mat o.fl í landinu sjálfu sem lagði til fjármagnið, og vörurnar síðan sendar út til þeirra sem þurfa á því að halda. Þær upphæðir sem þau lönd leggja til eru því hálf-ýktar. Það má því áætla að þeir styrkir sem fara frá Íslandi lendi að mestu leiti í vösum þeirra þjóða sem sjá um t.d. matarinnkaupin og komi þeim til skila.
Miðað við þetta myndu þessar 5 milljónir í raun jafngilda um 50 milljóna króna styrk frá t.d. dönum (þeir nota peninginn til að kaupa mat og lyf í sínu eigin landi og flytja svo út). Ef við tökum svo íbúafjöldann inn í dæmið, þá myndu þessar 5 milljónir jafngilda að stofnun eins og pokasjóður myndi gefa tæpan milljarð ef hann væri danskur (danir eru ca 18 sinnum fleiri).
Þetta framlag frá pokasjóði er því mjög rausnarlegt.
![]() |
Pokasjóður styrkir fórnarlömb í Búrma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Stefán Winkel Jessen
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.